157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

þróun á vinnumarkaði og aðgerðir í atvinnulífinu.

[15:20]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem var nú býsna opin en það er líka bara vel. Það er alveg full ástæða til að fara í samtal hér í þingsal og jafnvel að taka sér meiri tíma en felst í svona fyrirspurn til að ræða almennt um atvinnulífið, verðmætasköpun og stöðu efnahagsmála. Hér er ekki langt síðan sérstök umræða var um efnahagsmál. Í síðustu viku var farið yfir þessa stöðu og það er alveg rétt, það hafa verið ákveðin áföll. Þau áföll hafa þó ekki verið af þeirri stærðargráðu að ríkisstjórnin sé að hvika frá þeirri stefnu sinni að ná tökum á ríkisfjármálum með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er langtímamarkmiðið og ég veit að við erum öll sammála um það þó að mér heyrist okkur greina stundum á um aðferðir.

Hv. þingmaður tiltekur ferðaþjónustuna sérstaklega. Það er alveg rétt að það hafa verið ákveðin áföll sem hafa snert þá atvinnugrein. Svo hefur staða gengisins — reyndar ef krónan er að gefa eftir þá er það eitthvað sem kemur útflutningsgreinunum til góða á meðan það kemur verr við almenning hér í landi, þann sem er skuldsettur hér. Við þekkjum þessa sögu krónunnar, hvernig hún ýkir allar sveiflur, bæði upp og niður. En ég er í þéttu samtali, og ég geri ráð fyrir að það eigi við aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar sem málið heyrir undir, við fulltrúa þessara atvinnugreina. Við erum í samtali, það er margt á döfinni, það er mikil bjartsýni víða og ég er algerlega ósammála hv. þingmanni í því að það sé þverrandi traust til aðgerða ríkisstjórnarinnar í samfélaginu. Annað sýna bara tölur. Við ætlum okkur að standa undir því trausti og það er margt í gangi. Það er hið einfalda svar. Við erum að tala við fulltrúa þessara atvinnugreina. Ég veit af fjölda fyrirætlana sem eru í góðu ferli (Forseti hringir.) og mun halda áfram að gera mitt besta til að styðja við þau verkefni.