úttekt á vinnubrögðum Ríkisútvarpsins.
Virðulegur forseti. Það hefur verið stórmál til umfjöllunar nýverið, líklega einhver stærsta frétt í einhvern tíma um evrópska fjölmiðla., þ.e. sem varðar breska ríkisútvarpið, BBC. Þar eru innanhússskýrslur sem sýna fram á fréttafalsanir, óheiðarleika í efnistökum, hreinan og beinan pólitískan áróður, að stjórnendur hafi verið meðvitaðir um þessi mál. Útvarpsstjóri breska ríkisútvarpsins hefur sagt af sér, yfirfréttastjóri hefur sagt af sér. Þarna eru nefndar grófar falsanir á ummælum Donalds Trumps, stórlega bjöguð umfjöllun um meiri háttar mál, transmál, útlendingamál, stríð hvers konar. Fyrir mörgum er þetta sönnun á hlutdrægni sem margir höfðu þó á tilfinningunni. Margir Íslendingar hafa sannarlega svipaða tilfinningu um Ríkisútvarpið, þ.e. ríkisútvarpið okkar, sem reyndar byggir vissulega mjög á BBC í mörgum málum og hélt nú ákveðnum hlífiskildi yfir BBC í þessum málum og sagði ekki frá þessu fyrr en menn voru búnir að segja af sér. Ég vildi aðeins ræða þetta við hæstv. menningarmálaráðherra sem ég þykist nú vita að mun eftir sem áður gaslýsa okkur um þessa pólitísku slagsíðu Ríkisútvarpsins. En maður er með augu, maður er með eyru og maður veit að þarna eru margir inni í rammpólitískri baráttu. Ég hef nú nefnt það hérna í þinginu áður að sumir segja það fullum fetum, lýsa því að hlutverk Ríkisútvarpsins sé að stemma stigu við ákveðnum pólitískum stefnum, m.a. þjóðernisíhaldi, lýsa því fullum fetum. Hæstv. ráðherra hefur nú neitað að bregðast við því en förum ekki út í það hér. Ljóst er að Ríkisútvarpið tekur einfaldlega einhliða afstöðu í mörgum stórum málum, einmitt transmálum, loftslagsmálum, útlendingamálum, erlendum stjórnmálum, hvað þá bandarískum stjórnmálum. Þetta sjá allir sem vilja sjá og eru farnir að telja margir að RÚV sé hreinlega að vinna gegn sinni heimssýn þrátt fyrir að menn séu neyddir til að greiða fyrir þetta og ríkisstjórnin neiti að breyta því og leyfa mönnum að ráðstafa þessu frjálst.
Ég hefði áhuga á því í ljósi þessara tíðinda, t.d. af BBC, að vita hvort hæstv. ráðherra viti til þess að það hafi farið fram nokkur úttekt á síðari árum á hlutdrægni Ríkisútvarpsins í stórum, t.d. umdeildum samfélagsmálum eða einfaldlega pólitík almennt. (Forseti hringir.) Hvort slík úttekt hafi farið fram á einhverjum tímapunkti. Og þá hvort hæstv. ráðherra væri tilbúinn til að styðja við slíka úttekt og standa (Forseti hringir.) fyrir því að hún fari fram.