157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

úttekt á vinnubrögðum Ríkisútvarpsins.

[15:39]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég óttast að það sé þannig að þegar hæstv. ráðherra og aðrir þingmenn stjórnarinnar lýsa því að þeir deili ekki þessum áhyggjum — sem eru ekki áhyggjur heldur staðreynd máls og upplifun mjög margra í samfélaginu, ekki aðeins stjórnmálamanna heldur fjölda þeirra sem hafa ekki endilega þá heimssýn sem rekin er á Ríkisútvarpinu. Þar að auki má bara nefna að hæstv. ráðherra hlýtur þá að vera eins og einhver fiskur í vatni ef hann neitar að horfast í augu við þetta. Maður þarf ekki að horfa lengi á dagskrá Ríkisútvarpsins til þess að átta sig á því hér um bil hvar sjónarmiðin liggja í umfjöllun þar. Látum liggja á milli hluta hvernig starfsemi fréttastofunnar er, þar er þetta kannski skárra, en í öllu öðru menningarefni, dagskrárefni eða öðru — kannski finnst mönnum það bara óskaplega eðlilegt og þá er fínt að hæstv. ráðherra staðfesti að hann vilji ekki að það fari fram úttekt á heildarstarfsemi Ríkisútvarpsins þar sem kannað er heiðarlega af óháðum aðilum hvernig liggur í þessu máli, að hæstv. ráðherra þóknist ekki slík úttekt.