úttekt á vinnubrögðum Ríkisútvarpsins.
Virðulegur forseti. Ég minni á það sem ég sagði áðan; ég held að besti dómur sem fjölmiðill getur fengið er að hann njóti víðtæks og góðs trausts. Það útilokar það þó ekki að ef mistök eru gerð er sjálfsagt að kanna það í staðinn fyrir að fara að gera einhverja allsherjarúttekt á Ríkisútvarpinu. Ég sé ekki tilefni til þess. Hv. þingmaður getur hins vegar komið með tillögu um það hér inni.
Hins vegar nenni ég ekki að fara að hlaupa til vegna þess að hv. þingmaður kemur ítrekað fram með hálfkveðnar vísur, hálfsannleik og dylgjur. Hann verður einfaldlega að nefna einhver dæmi, einhver skýr dæmi um það sem hann er að tala um, (SMás: Ég var að gera það áðan.) ekki láta hlutina alltaf liggja í loftinu.