samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Forseti. Þetta er stór stund hér í dag þar sem við lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta er stór stund. Þetta er mikilvægt skref sem við erum að stíga og mikilvæg lögfesting. Það er búið að vera verulega ánægjulegt að vinna í hv. velferðarnefnd að þessu máli og ég vil þakka samstarf nefndarmanna um það. Það er mikilvægt áfram að vinna með málaflokkinn og að samtal verði milli ríkis og sveitarfélaga. Við þurfum að verja hag fatlaðs fólks hér á landi og því styð ég þetta mál heils hugar.