samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil óska okkur öllum innilega til hamingju með þennan yndislega dag. Hér er um eitt helsta grundvallarmál Flokks fólksins að ræða, hér er u.þ.b. að verða lögfestur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það kom mér því á óvart hversu mikil andstaða var í þessu máli á meðal fulltrúa stjórnarandstöðunnar sem bæði birtist af hörku hér í þingsal og í nefnd. Það hefði mátt halda að hér væri verið að setja einhver ólög, slík var mótstaðan. Á sama tíma og barist var gegn því að þetta mál næði fram að ganga klifuðu aðilar stjórnarandstöðunnar á því að þeir væru hlynntir lögfestingu þessa góða samnings. Hvernig má það fara saman? Stærsti fleygurinn var að ekki hefði verið settur verðmiði á aðgerðirnar, einn stór verðmiði. En þessari baráttu hér á þinginu er lokið. Komið er að atkvæðagreiðslu.