samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska okkur til hamingju með að samningur um réttindi fatlaðs fólks skuli loksins verða lögfestur hér á landi. Ég get leyft mér að fullyrða að það gerist þar sem ég veit að hér í þingsalnum er meiri hluti fyrir því. Ég er hins vegar undrandi yfir því að það hafi ekki gerst miklu fyrr þar sem með þessu er einungis verið að tryggja full og jöfn mannréttindi og frelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við okkur hin sem búum ekki við slíkar aðstæður.
Virðulegur forseti. Fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga eru eilífðarverkefni og á ekki að blanda inn í þetta mál. Til þess er það allt of stórt. Fögnum frekar þessum áfanga sem við erum að ná hér í dag.