samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Sjálfstæðisflokkurinn styður lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hefur gert alla tíð. Það vakti því nokkra furðu mína að hlusta á hv. formann velferðarnefndar tala um að minni hlutinn hafi hér beitt sér af mikilli hörku, að samningurinn hafi mætt mikilli andstöðu, og gefa í skyn að við teldum einhvern veginn að verið væri að setja ólög. Það er ómaklegt. Þvert á móti skiljum við mikilvægi þessa samnings. Við viljum að lögfesting hans heppnist. Við viljum að það sé farið eftir landslögum um samskipti ríkis og sveitarfélaga og við viljum að fatlað fólk njóti þeirra réttinda sem samningurinn felur í sér. Hér er um mannréttindamál að ræða og við munum því greiða atkvæði með þessum samningi og lögfestingu hans.