157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:00]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Nú þegar við erum að greiða atkvæði um þetta mikla réttlætismál, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, má rifja upp að þessi samningur var undirritaður af stjórnvöldum 2007, fullgiltur árið 2016 og, eins og kom hér fram þá var samþykkt þingsályktunartillaga 2019 um að fela ríkisstjórninni að fullgera og lögfesta þennan samning. Nú loksins, 2025, er verið að lögfesta þessa miklu réttarbót fyrir fatlað fólk. Ég er mjög stolt af Flokki fólksins fyrir að hafa verið þar í forsvari og barist fyrir þessu máli í fjölda ára. Þetta er vitaskuld mikið réttindamál og mikil réttindabót fyrir fatlað fólk, að það njóti fullra mannréttinda til jafns við aðra í þjóðfélaginu. Ég er stolt og glöð fyrir hönd Alþingis að við séum að lögfesta þennan samning hér í dag og við gleðjumst öll.