157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:02]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta risastóra mál kristallar í raun ástæðu þess að ég gekk í Flokk fólksins þegar við stofnun hans. Þar var komið afl sem ber hag þeirra sem minna mega sín fyrir brjósti. Ég verð að segja að í ljósi mikilvægis þessa samnings fyrir fatlað fólk þá kom þung andstaða minni hlutans í ferlinu mér mjög á óvart. Lögfesting hans hefur beðið samþykktar Alþingis í tæp 20 ár. Ég vil óska öllum þeim sem njóta munu góðs af þessum löngu tímabæra sem og tímamótasamningi hjartanlega til hamingju. Ég segi já.