samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég segi já. Ég vil þakka öllum sem hafa barist fyrir þessum samningi. Ég vil þakka Ágústi Ólafi Ágústssyni, þingmanni Samfylkingarinnar sem fékk þingsályktunartillögu um það samþykkta hér, ég vil þakka ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur en sérstaklega félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland, og Flokki fólksins sem sannarlega hafa brunnið fyrir þessu máli og barist fyrir því. Ég vil líka þakka þingnefndinni og öllum sem hafa komið að vinnslu málsins. Mér finnst mikilvægt að tekið sé utan um það að við látum ekki duga að samþykkja þetta mál hér í dag heldur stofnum í samvinnu við sveitarfélögin til hóps sem fer yfir kostnað af búsetuúrræðum þannig að við fylgjum málinu alveg eftir og tryggjum í raun og veru mannréttindi fatlaðs fólks, ekki bara í þeim sveitarfélögum sem hafa lyft grettistaki í þessu heldur um land allt, fyrir alla. Það er kjarni þessa máls.