157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:05]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á sér margs konar hlutverk. Hann er hvatning, hann er mannréttindaskjal, hann er staðfesting og viðurkenning á að fatlað fólk er fullgildir þegnar landsins til jafns við aðra þegna. Umfram allt er hann einnig mikilvægt og nauðsynlegt aðhald og leiðarljós fyrir stjórnvöld til að halda áfram að bæta hag fólks með fötlun. Ég segi stórt já.