157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:06]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Það er nokkur samhljómur með málflutningi okkar í minni hlutanum og því sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson sagði hér í pontu um að við ættum ekki að láta það duga að lögfesta samninginn heldur þyrftum við að gera meira. Út á það hefur málflutningur okkar gengið allt frá upphafi og raunar reyndum við í störfum nefndarinnar að vinna nákvæmlega að því markmiði af heilindum. Við lögðum fram breytingartillögur sem miðuðu að því að sníða af þá vankanta sem eru á málinu í uppleggi ríkisstjórnarinnar, m.a. var það að vista samninginn í ráðuneyti dóms- og mannréttindamála með öðrum mannréttindasamningum þar sem hann á heima þannig að unnt sé að kortleggja nákvæmlega hverju þurfi að breyta í íslenskum lögum til að samræma þau betur þeim skuldbindingum sem mælt er fyrir um í samningnum, sem og líka að fyrst það er skoðun ríkisstjórnarinnar að enginn kostnaður hljótist af þessu fyrir sveitarfélögin þá sé það alveg skýrt í lögum að ríkið beri ábyrgð á því. Því var hafnað. (Forseti hringir.) Ég ætla hins vegar ekki að láta það spilla þessu ágæta máli og greiði því atkvæði með lögfestingunni.