samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt, þetta er risastór dagur fyrir samfélagið allt. Mér finnst þetta vera ein merkilegasta atkvæðagreiðsla sem ég hef tekið þátt í hér á Alþingi frá því að ég tók hér sæti. Ég ætla hins vegar líka að fá að halda því til haga að auðvitað skilur maður að einhverju leyti áhyggjur sveitarfélaganna þegar kemur að því að fylgja eftir þessum samningi. Þær áhyggjur eru hins vegar sprottnar af áralöngu vantrausti, ef ekki áratugavantrausti, í samskiptum sveitarfélaga við ríkið. Það er ansi langt seilst að ætla að kenna þeim flokkum sem núna mynda ríkisstjórn um það. Sú ábyrgð liggur annars staðar en ég ætla alveg að segja það mjög skýrt að það er mikill vilji þessarar ríkisstjórnar, allra flokka, og ætti að vera okkur öllum leiðarstef hér á þingi að við þurfum öll að sameinast um það að laga þau samskipti. En enginn skal draga í efa að það er fullur vilji þessarar ríkisstjórnar til þess að standa við þau mannréttindi sem við erum hér að festa í lög.