samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég segi já og ég tel þetta vera mikinn gleðidag og vil óska öllum sem hafa komið að þessu máli í þessum langa aðdraganda til hamingju með daginn og í raun þjóðinni allri. Hér erum við að stíga mikilvægt skref um að lögfesta þau réttindi sem þegar er búið að fullgilda frá árinu 2016 þannig að þetta er mikilvægt skref. Sú gagnrýni sem maður heyrir úr ræðustól Alþingis frá minni hlutanum — ég heyri þetta svolítið með svipuðum eyrum og hv. þm. Sigmar Guðmundsson, hún er gagnrýni á skort á trausti, trausti sveitarfélaganna, að fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga hafi ekki verið nægilega góð síðustu ár og áratugi jafnvel. En hér er komin ný ríkisstjórn sem lætur verkin tala, m.a. í því að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga þegar kemur af fjárhagsmálum og t.d. að taka 15% af því sem sveitarfélögin leggja til varðandi uppbyggingu hjúkrunarheimila, það er komið til ríkisins, (Forseti hringir.) og t.d. taka yfir málaflokk barna með fjölþættan vanda, það er komið til ríkisins. Svona vinnur þessi ríkisstjórn, lætur verkin tala og hún mun gera það áfram.