samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég ætlaði nú bara að vera sultuslakur í sætinu mínu og vera á græna takkanum en það er ekki annað hægt en að koma hér upp og setja mikinn fyrirvara við þessi orð hv. þingmanna Flokks fólksins, þetta var líka í umræðunum, þar sem þeir gera ekkert annað en að koma hér upp og segja einhvern hálfan sannleika um hvað minni hlutinn var að tala um í þessari umræðu. Það er algjört bull að minni hlutinn hafi, og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, ef við tölum um okkur, verið á móti og að þetta hafi mætt andstöðu. Ég vil benda hv. þingmönnum Flokks fólksins á að ræður hér eru skrifaðar niður og eru til, þannig að endilega lesið þær og sjáið hvað við vorum að segja. Það sagði hver einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í fyrstu setningu allra ræðna að hann væri með þessu máli í meginreglunni, að þetta ætti að fara í gegn, enda eru allir þingmenn Sjálfstæðisflokks á grænu. Við vorum bara að gjalda varhuga við framkvæmdinni, búin að setja inn breytingartillögu og ég veit ekki hvað, sem fór ekki í gegn. Allt í góðu, það er ríkisstjórn í landinu sem vill fá þetta í gegn en ég ætla að biðja þingmenn Flokks fólksins um að reyna aðeins að fara að segja satt.
(Forseti (BHar): Forseti minnir á að við erum í liðnum að gera grein fyrir atkvæði sínu.)