157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:14]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Hér stend ég með bros á vör og gleði í hjarta. Loksins, loksins, segi ég eins og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sagði áðan, erum við að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Nú stöndum við öll þjóðin með sömu réttlætiskennd í hjarta. Mig langar að færa sérstakar þakkir fyrir eljusemina hjá Ingu Sæland og Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir að hafa haldið þessu máli á floti ár eftir ár, flutt hverja þingsályktunartillöguna á fætur annarri og loksins er þetta komið í höfn. Húrra fyrir þjóðinni. Húrra, höldum áfram.