fjöleignarhús.
Frú forseti. Við greiðum nú atkvæði um þetta fræga mál, breytingar á lögum um fjöleignarhús, um að leyfa hunda- og kattahald. Ég hef sagt það hér áður í þessum stól að um sé að ræða frelsismál. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson lýsti því yfir að hann hefði verið baldinn ungur maður og stundum þurft að fá lögregluna til sín, kannski sjaldan. (Gripið fram í.) Það hefði verið skrýtið ef hv. þingmaður hefði verið að spila einhverja músík á háum styrk, Uriah Heep eða Slade, að húsfélagið hefði getað bannað að spila ákveðna músík í húsfélaginu. Erum við ekki á nákvæmlega sama stað með hunda- og kattahald, að það væri skrýtið að banna að vera með slík dýr og skerða þannig notkun eignarréttarins?