fjöleignarhús.
Frú forseti. Við í Framsókn styðjum heils hugar útvíkkun á lögum um fjölbýlishús og einhvers konar endurskoðun á hunda- og kattahaldi. Hins vegar er gengið of langt hér. Hér er verið að breyta meginreglunni hvað varðar hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum og því miður eru þær umsagnir og áhyggjur heilbrigðisstarfsfólks sem fram hafa komið í meðferð málsins í nefndinni virtar að vettugi.
Ég hef líka velt fyrir mér hvernig í ósköpunum hv. þingmenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar geta verið á grænu hér í dag. Hv. þm. Grímur Grímsson útskýrði það nú ágætlega fyrir okkur hér áðan þegar hann bar háa tónlist í fjölbýlishúsi saman við heilsu fólks. Ég vara við þessu skrefi sem hér er verið að taka í dag, því miður, því að það hefur ekki verið tekið tillit til þeirra ábendinga sem læknar og heilbrigðisstarfsfólk hafa komið með í tengslum við þetta varðandi heilsu fólks. Hér er einfaldlega (Forseti hringir.) verið að setja gæludýrið ofar einstaklingum, því miður. Við verðum á rauðu.