157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:22]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Eins og fram hefur komið í máli mínu hér í þingsal tel ég sjálfsagt og eðlilegt að endurskoða lög er varða dýrahald í fjöleignarhúsum. Hér er hins vegar gengið of langt og að mínu viti af nokkru skeytingarleysi gagnvart viðkvæmum hópi. Þá er ég að tala um fólk sem annaðhvort getur ekki eða treystir sér ekki til að búa í nábýli við dýr. Það er nefnilega kjarnaatriði; í fjöleignarhúsum eru tvenns konar eignir. Þetta eru séreign og sameign. Þarna er nábýli fólks sem þarf að komast að samkomulagi um hvernig það vill haga sínum málum. Hér er löggjafinn hins vegar að segja: Nei, þið fáið ekki að ráða þessu. Sama þótt allir séu sammála um að í þessu fjölbýlishúsi, þessum stigagangi, verði ekki hundar og kettir skiptir það bara engu máli. Við ætlum að segja ykkur hvernig þetta á að vera. Því ætla ég að segja nei. Mér finnst líka athyglisvert, þannig að það sé sagt hérna í blálokin, að horfa á þingmenn meiri hlutans fylgja flokkslínum (Forseti hringir.) í þessu máli sem er engan veginn hægri/vinstri pólitík og mjög óhefðbundið að öllu leyti. (Forseti hringir.) Það er athyglisvert að sjá það.