157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:26]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta mál er kannski ekki vinstri eða hægri pólitík, þetta er bara manneskjuleg pólitík. Við tökum líka ákvörðun út frá hjartanu í þessu máli og ég er svo hjartanlega sammála því að fólk sem býr í fjölbýli geti haft gæludýr, hvort sem það er hundur eða köttur. Þetta er bara svo stór hluti af lífi fólks. Einmanaleiki hefur aukist mikið í þjóðfélaginu og þetta er bara hluti af því að styðja við að komið sé í veg fyrir hann. Þeir þekkja það sem hafa haldið dýr, hversu mikils virði dýrin eru fyrir andlega heilsu, hvort sem fólk hefur lent í veikindum eða einangrast, eða hvort um er að ræða öryrkja, aldraða eða börn. Börnin elska dýr og ég hef ekki áhyggjur af því að einhverjir sem er umhugað um sína eigin heilsu geti ekki búið við slíkt, að það verði ekki tekið tillit til þess í einhverjum sambýlum. Verum manneskjur og við tökum tillit hvert til annars. Ég segi já með glöðu geði.