157. löggjafarþing — 32. fundur, 12. nóv. 2025.
fjöleignarhús.
107. mál
Virðulegur forseti. Þetta er bullandi frjálslyndismál. Lengi vel var það þannig að það var bannað að hafa hunda í þéttbýli en það voru framsýnir stjórnmálamenn sem börðust gegn því að aflétta því banni. Því geta þeir sem búa í eigin húsum í dag, í sérbýli, haldið dýr kjósi þeir svo. Þetta mál snýst einfaldlega um það að allir aðrir í samfélaginu njóti sömu réttinda.