fjöleignarhús.
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta mikið réttlætis- og sanngirnismál og mér finnst þetta skref í mjög góða átt, að fjölga dýrum. Hundar, ólíkt því sem kannski margir halda, eru bara hreinar og klárar kærleiksverur. Ég skil ekki alveg að frjálslynt fólk skuli einhvern veginn geta verið á móti þessu vegna þess að húsfélög hafa enn þá leyfi til að setja sér sérreglur, komi upp atvik sem málefnaleg ástæða er til að skoða. Þá geta enn þá tveir þriðju íbúa bannað ákveðin dýr í húsum sínum. Ég sé því ekki nema þetta sé hið besta mál. Næst eru náttúrlega skriðdýr og svo ekki bara kettir heldur apakettir.