fjöleignarhús.
Virðulegur forseti. Mér þykir það vissulega leitt að geta ekki stutt örlítið aukið frelsi í fjöleignarhúsum. Í ljósi breytingartillagna minna sem voru felldar hér við 2. umræðu sé ég mér ekki fært að styðja málið enda takmarkar málið m.a. samningsfrelsi fasteignaeigenda og setur suma fasteignaeigendur í ákaflega erfiða stöðu. Mér þykir leitt að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hafi ekki borið gæfu til þess að búa þannig um hnútana að hægt væri að sætta, kannski ekki öll sjónarmið en mæta a.m.k. málefnalegum ábendingum sem komu fram við meðferð málsins. Mér þykir mjög leitt að geta ekki stutt þetta annars ágæta mál en ég á hins vegar von á því, og held að ég þori að spá fyrir um það, að lög um fjöleignarhús taki frekari breytingum í kjölfarið, (Forseti hringir.) af óhjákvæmilegum ástæðum.