157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

skattar, tollar og gjöld.

148. mál
[16:35]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta mál sem við greiðum nú atkvæði um fékk ágæta umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd hvar ég sit og er margt í málinu sem við styðjum. Þó er eitt í ferlinu sem skýtur skökku við og það er afskaplega lítil umfjöllun um umsögn endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Án þess að reifa alla umsögnina geldur fyrirtækið varhuga við nokkrum atriðum, til að mynda breytingum á tollalögum, virðisaukaskatti og tekjuskatti sem varðar það að þegar ríkið hefur tapað dómsmáli, þannig að það myndast inneign hjá borgara og/eða fyrirtæki, eigi viðkomandi rétt á því að fá það endurgreitt en ekki að skatturinn fái það hlutverk að meta hverjir hafi verulega hagsmuni af því að fá þessa endurgreiðslu. Við teljum rétt að nefndin skoði m.a. þetta atriði nánar. Óska ég því eftir því að þetta mál fari aftur inn í efnahags- og viðskiptanefnd á milli 2. og 3. umræðu.