skattar, tollar og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég vil bara koma á framfæri athugasemdum um praktískt atriði eins og það er kallað. Hér liggur fyrir frumvarp um breytingu á ýmsum lögum sem mætti kannski kalla bandorm í víðu samhengi en innan sviga er nefnt að þetta séu breytingar á lögum um peningaþvætti og varnir gegn hryðjuverkum og fleira. Sá hluti er ákaflega lítill hluti af þessu frumvarpi. Frumvarpið lýtur hins vegar að breytingum á ýmsum öðrum lögum sem kannski vega miklu þyngra í umræðunni í þinglegri meðferð. Ég vil bara nefna þetta því mér finnst orðinn svolítill plagsiður í frumvörpum hér að þau bera öll sama heiti. Ég kalla eftir því við hæstv. ríkisstjórn sem leggur fram mál að huga að þessu þannig að þingmenn séu betur upplýstir um raunverulegt innihald málanna. Hins vegar tek ég undir það að þetta mál þurfi nánari umfjöllun milli 2. og 3. umræðu.