markaðssetningarlög.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra kærlega fyrir framsöguna í þessu máli. Ég er með tvær til þrjár spurningar sem ég ætla að reyna að fá svör við í andsvörum frá ráðherra. Það sem kannski kom ekki fram í framsögu hæstv. ráðherra eru stjórnvaldssektirnar sem geta komið til en þær hafa verið hækkaðar verulega, ef ég skil frumvarpið rétt. Stjórnvaldssektir gátu numið allt að 10 millj. kr. en geta nú, samkvæmt innleiðingu ESB-reglugerðarinnar, verið allt að 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs hjá atvinnurekanda eða jafnvirði 2 milljóna evra sem eru þá í íslenskum krónum 300 millj. kr. hvort heldur sem er hærra. Þetta er þrítugföldun frá því sem var og ég ætla bara að byrja á því að fá svar við því: Hvað réttlætir þessa svakalegu hækkun? Hver eru helstu rökin á bak við þetta? Hefur hæstv. ráðherra og ráðuneytið ekki áhyggjur af því, ef lítil og meðalstór fyrirtæki brjóta þessi lög — og að sjálfsögðu er megintilgangur frumvarpsins ljómandi fínn — í góðri trú eða ekki, að þessar ævintýralegu sektir geti haft veruleg áhrif á það fyrirtæki sem myndi brjóta þessi lög, hvort sem það væri í góðri trú eða ekki.