markaðssetningarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða fyrirspurn. Þetta er auðvitað alveg hárrétt, það er verið að leggja til þarna umtalsverða hækkun. Rökin fyrir þeirri hækkun liggja fyrst og fremst í því að þessi tæknivæðing markaðshátta þýðir að við erum oft að tala um viðskipti á milli landa sem fela í sér mun stærra markaðssvæði og það breytir hlutfalli upphæðar sektar vegna þess að hlutfall viðskiptanna getur breyst. Það breytir því ekki að hér erum við á litlum markaði þar sem flest mál koma til skoðunar Neytendastofu og það er alveg skýrt í lögunum og það er alveg skýrt að viljinn er hér að áfram verði langflestum málum sem er vísað til Neytendastofu lokið með samtali og sáttaumleitan þannig að ekki komi til þessa. Síðan ætla ég að tiltaka það sem skiptir líka gríðarlega miklu máli, að í frumvarpinu er verið að fækka mjög mikið ákvæðum laganna varðandi brot sem geta varðað refsingu; það er verið að færa þungann á viðurlögum frá refsingum, það eru mikil refsiákvæði í núgildandi lögum, yfir í þetta sektarákvæði. En þetta er eitt af því sem ég veit að verður rætt í nefndinni en þetta er svona til að skýra málið, hvaðan þessi hækkun er komin.
(Forseti (IngÞ): Forseti vill biðja alla hv. þingmenn í hliðarsölum að sýna þeim sem hér taka þátt í umræðum tilhlýðilega virðingu.)