markaðssetningarlög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ljómandi gott andsvar. Af því að hæstv. ráðherra minnist einmitt á — þetta er ævintýralegt frumvarp, maður er að reyna að bögglast í gegnum 86 bls. og m.a.s. punktarnir eru einhverjar 6 bls. — að þetta fari á milli landamæra af því að sektarhækkunin er út af því, þá breytir það því ekki að samkvæmt ESB-reglugerðinni, ef ég skil þetta rétt, þá er hún bara á milli landamæra en atvinnuvegaráðuneytið ætlar að beita sömu sektum á brotum á innanlandsmarkaði. Eins og ég skil þetta — og hef lesið í umsögnum frá Samtökum atvinnulífsins og Félagi atvinnurekenda en þau eru nokkuð viss um það — þá er þetta bara hrein og klár gullhúðun sem myndi þá ganga algerlega í berhögg við stefnu ríkisstjórnarinnar um að reyna að afnema gullhúðun. Ef þetta gengur lengra en ESB-reglugerðin, er þetta þá ekki bara gullhúðun? Ef ekki, þá bara fæ ég svar við því.