Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024. Markmið þessa afurðasjóðs er að treysta áframhaldandi starfsemi í Grindavíkurbæ í ljósi óvissuástands vegna náttúruhamfara með því að gefa rekstraraðilum kost á að sækja um fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þar með talið tjón vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda sem tengjast hamförunum. Staðan er sú að hvorki hefðbundnar tryggingar né Náttúruhamfaratryggingar Íslands tryggja með fullnægjandi hætti óbeint tjón af völdum jarðhræringa og er afurðasjóðnum ætlað að koma til móts við áhyggjur fyrirtækjaeigenda vegna þessa. Upphaflega kváðu lög á um að Afurðasjóður Grindavíkurbæjar skyldi tryggja óbeint tjón sem rekstraraðilar yrðu fyrir frá gildistöku laganna þann 6. júlí 2024 til og með 31. desember sama ár. Ástæða þessa stutta gildistíma var óvissa um þróun mála á svæðinu en gert var ráð fyrir að þörf fyrir framlengingu úrræðisins yrði metin með hliðsjón af því hvernig jarðhræringar og eldsumbrot á svæðinu myndu þróast með tímanum. Fyrir ári, í nóvember, samþykkti Alþingi síðan að framlengja úrræðið til ársloka 2025.
Málefni afurðasjóðsins var nýlega tekið fyrir í Grindavíkurnefnd. Í ljósi þeirrar óvissu sem enn ríkir um jarðhræringar á svæðinu telur nefndin nauðsynlegt að framlengja stuðningsúrræði laganna til ársloka 2026. Með frumvarpi þessu er slík breyting lögð til og ég bind vonir við að málið fari hratt og vel í gegnum þinglega meðferð. Úrræðið hefur enda dregið úr óvissu fyrir fyrirtækjaeigendur á svæðinu og þar með tryggt áframhaldandi atvinnustarfsemi í bænum. Þess skal getið að hingað til hafa engar bætur verið sóttar úr sjóðnum. Komi til þess að ráðstafa þurfi fjármunum úr honum er gert ráð fyrir að nýta megi afgangsheimildir úr fyrri fjárlögum.
Forseti. Ég hef í þessari stuttu framsögu gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hæstv. atvinnuveganefndar og þaðan vonandi fljótlega hingað inn til 2. umræðu.