breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé óhætt að taka undir þetta og þess vegna er einmitt svo mikilvægt að breyta ákvæðum um afmörkun verndarsvæða, skapa meiri sveigjanleika þar. Hitt finnst mér líka skipta máli. Mér finnst það synd þegar ákveðin svæði hafa jafnvel fengið góða og vandaða umfjöllun, þegar unnar hafa verið miklar rannsóknir á náttúrufyrirbrigðum á einhverjum svæðum, að lokaniðurstaða þeirrar vinnu sé svo að viðkomandi kostur sé kannski einvörðungu friðlýstur gegn orkuvinnslu en ekki friðlýstur að öðru leyti og telji t.d. ekki fram inn í alþjóðlegar skuldbindingar um líffræðilegan fjölbreytileika og annað. Mér finnst þetta vera ákveðinn galli á fyrirkomulaginu eins og það er núna. Þess vegna erum við einmitt í sama frumvarpi og við erum að taka á vindorkumálunum, að huga betur og skýra betur samspilið milli verndarflokks rammaáætlunar og friðlýsingarflokkanna í náttúruverndarlögum. Þetta tel ég að sé mjög mikilvægt, annars vegar þetta og hins vegar að skerpa á skilyrðunum þegar kemur að afmörkun verndarsvæða, skapa einmitt sveigjanleika til þess að brjóta upp vatnasvið ef fagleg sjónarmið hníga að því.