157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

trygging grunnþjónustu.

[15:07]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að eiga hér orðastað við hæstv. forsætisráðherra um þá staðreynd að öll samfélög glíma við það að veita öllum íbúum sinna landa grunnþjónustu með einhverju jafnræði. Byggðastofnun hefur á undanförnum árum verið að rannsaka og gefa út skýrslur um það hvað sé grunnþjónusta. Hvað er það? Hvaða grunnþjónusta er það sem ríkið á að veita öllum landsmönnum? Í mörgum löndum hafa menn farið þá leið að vera með þrjú stjórnsýslustig, búa til fylki eða ömt til að tryggja að yfirstjórn ríkisins sé jöfn alls staðar fyrir alla þegna landsins. Við á litla Íslandi, sem er reyndar landfræðilega stórt og talsvert stærra en mörg önnur lönd sem eru með fylki og ömt, höfum sannfært okkur um að tvö stjórnsýslustig séu ákjósanlegust en við höfum búið til svona millistjórnsýslustig, landshlutasamtök og við höfum búið til mismunandi svæði fyrir stærri ríkisstofnanir. Heilbrigðisumdæmin eru sex eða sjö. Við erum með tíu landshlutasamtök. Sóknaráætlanir landshluta eru tíu. Við erum með átta sýslumenn, reyndar níu, einn í Vestmannaeyjum, átta héraðsdómstóla, við erum með barnaverndar- og farsældarsvæði sem eru mismunandi. Allt hefur þetta orðið til þess að það er erfitt að samræma hluti, t.d. þegar gefnir eru út lýðheilsuvísar sem byggðir eru á heilbrigðisumdæmum þá er ekki hægt að bera þá saman við aðra landshluta vegna þess að þetta skarast.

Í mínum huga hefur verið skynsamlegt að tryggja þessa grunnþjónustu með því að ríkið veitti sömu þjónustu á einhverjum tilteknum fjölda svæða. Eru þau fjögur, eru þau sex eða eru þau átta eins og sýslumennirnir eru í dag? Ég held að það væri skynsamlegt að tryggja að það væri með þeim hætti. Ríkisstjórnin virðist hins vegar vera á þeirri leið að miðstýra þessu öllu saman. Hún ætlar að leggja niður sýslumenn og fækka í einn. Hún ætlar að breyta framhaldsskólastiginu í fjögur til sex miðstýrð svæði, leggja af heilbrigðissvæðin tíu og héraðsdómstóla. (Forseti hringir.) Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er því þessi: Hvert er planið? Í fyrsta atriðinu í nýrri atvinnustefnu, í innganginum, segir að það eigi að þróa kjölfestuverkefni á landsbyggðinni. Er það vegna þess að ríkisstjórnin verður búin að leggja niður öll hin verkefnin sem eru til og þá þarf að þróa ný? Hvernig á að tryggja grunnþjónustu til allra íbúa landsins?