157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

trygging grunnþjónustu.

[15:12]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið sem í mínum eyrum hljómaði skýrt: Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur fundið upp nýja aðferð, ólíkt öllum öðrum samfélögum, við að tryggja grunnþjónustu, þ.e. að búa til miðstýringu, taka allt á einn stað og treysta því að þrátt fyrir reynsluna — tökum t.d. Skattinn þegar hann var sameinaður. Tókst frábærlega, sögðu allir. Hagræðingin skilaði sér og allt rosa gott. Niðurstaðan varð síðan sú að útibúin hringinn í kringum landið urðu bara núll og nix. Allt sogaðist á aðalstöðvarnar, allt sogaðist til Reykjavíkur. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er með þessu að staðfesta að miðstýring er stefna hennar í því hvernig eigi að veita grunnþjónustu til landsmanna. Ég ætla að fullyrða það að allir framhaldsskólar landsins leggi sig fram um að gæði þeirra kennslu séu býsna góð. Ég held að það sé hægt að sanna það með því að skoða hvað verður úr þeim nemendum sem þar eru. Ég held að það þurfi ekki miðstýringu til.

Mín hugmynd var einfaldlega að spyrja: Eigum við kannski að fara að horfast í augu við það að landið er stórt og þjónustu ríkisins þarf á einhverjum tilteknum stöðum? (Forseti hringir.) Ég get verið opinn fyrir því hvort það séu fjórir, sex eða átta staðir eða einhver önnur tala en ég er ósáttur við það, og við í Framsókn, að það verði einn staður. (Forseti hringir.) Þess vegna lögðum við t.d. fram landsbyggðarmat í þingsályktunartillögu um daginn, vegna þess að við höfum áhyggjur af miðstýringaráráttu þessarar ríkisstjórnar.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk).