157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

markmið um losun gróðurhúsalofttegunda.

[15:22]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin kynnti fyrir nokkrum dögum atvinnustefnu sína í samráðsgáttinni, reyndar 14. nóvember, og hefði að ósekju mátt fresta því um tvo daga og leggja atvinnustefnuna fram á degi íslenskrar tungu því að plaggið er fullt af íslenskum orðum, ágætum orðum, sem er hrært saman í einhvers konar orðasalat og hefði átt erindi í þeim efnum á þeim degi. Ekkert í sjálfu sér sem orkar tvímælis. Það er auðvitað verið að stefna að auknu áfallaþoli, aukningu á nýsköpun og vísindum og hvaðeina en eitt rek ég þó augun í og það er kafli hér sem lýtur að samdrætti í losun. Ég átti orðastað við hæstv. umhverfisráðherra í síðustu viku um markmið Íslendinga þegar kemur að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna frétta og skýrslna sem hafa verið ritaðar um hversu mjög á reiki þessi markmið Íslendinga hafa verið undanfarin ár. Hæstv. umhverfisráðherra svaraði mér því til að það hefðu verið óraunhæf markmið hingað til og það væri um að gera að Ísland héldi sig við raunhæf markmið í þessum efnum en kynnti svo undir lok svarsins, aðspurður, að núverandi markmið Íslands um samdrátt gróðurhúsalofttegunda væri 50–55%. Ég vek athygli á því að Evrópusambandið, sem er með metnaðarfyllsta markmið í heimi, hefur 55% samdrátt. Í atvinnustefnunni er nefnt að henni sé ætlað að styðja við fyrirhugaða loftslagsstefnu og núverandi loftslagsmarkmið. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra hvort hún telji það raunhæft, úr því að það var ekki raunhæft fyrir Ísland að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 29–41% fyrir árið 2030, að samdrátturinn verði 50–55% fyrir árið 2030.