markmið um losun gróðurhúsalofttegunda.
Virðulegur forseti. Atvinnustefnan, sem vissulega er enn þá í samráðsgáttinni, byggir á þeim markmiðum sem kynnt hafa verið um 50–55% samdrátt. Þá langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra um hinn orkusækna iðnað sem hér er fjallað um. Lögð er áhersla á að áframhaldandi alþjóðleg samkeppni málmframleiðenda á Íslandi haldi sér, sem felist m.a. í nýsköpun og þróun. Hvernig getur það samrýmst þessum markmiðum?
Talandi um orðasalat þá er nefnt í þessari atvinnustefnu að losunarkræfni íslensks útflutnings sé meðal mælikvarða við mat á árangri atvinnustefnunnar og stefnan miðar að því að draga úr losunarkræfni. Eftir að hafa legið yfir þessu skil ég svo sem til hvers er verið að vísa en ég hlýt að spyrja: Er endilega gott að hrekja í burtu fyrirtæki sem hafa háa losunarkræfni frá Íslandi og hvert eigum við þá að hrekja þessi fyrirtæki, (Forseti hringir.) hafandi það í huga að losunarkræfni þessara fyrirtækja í íslensku samhengi kann að vera stór en er lítil í alþjóðlegu samhengi? (Forseti hringir.) Hvernig samrýmist þessi stefna um orkusækinn iðnað þeim markmiðum sem hæstv. umhverfisráðherra hefur kynnt um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda?
(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörkin.)