157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

markmið um losun gróðurhúsalofttegunda.

[15:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Það hefur enginn áhuga á að hrekja þessi fyrirtæki í burtu. Það er einmitt mjög skýrt í þessari atvinnustefnu að við erum mjög stolt af því sem stóriðjan hefur gert hérna á Íslandi. Álfyrirtækin í landinu og þessi stóriðja er ástæðan fyrir því að við erum með jafn öflugt raforkukerfi og jafn lágt raforkuverð og við erum með í dag. Við eigum að vera stolt af því. Við eigum ekki að láta eins og þetta hafi ekki verið stórkostlegt skref fyrir okkur. En þessi atvinnugrein eins og aðrar atvinnugreinar þarf að þróast og af hverju þurfa þær að þróast? Jú, vegna þess að þau fyrirtæki sem einmitt fara niður þessa grænu vegferð fá meira og hærra verð fyrir sína vöru. Í samkeppni erlendis er þetta eftirsóknarvert. Það er nákvæmlega það sem var að gerast á Grundartanga í síðustu viku og er í takti við þessa atvinnustefnu, að ríkið komi inn og segi, já, það er svona starf sem við viljum sjá. Við viljum einmitt sjá kolefnisföngun frá stóriðju sem segir: Við ætlum að gera betur. Við ætlum að minnka losun. Það styrkir okkar stöðu í alheiminum þegar kemur að okkar verksmiðju, svo þessi verksmiðja verði áfram hér en verði loftslagsvæn. Það eru tækifæri í þessu.

Hæstv. forseti. Það eru tækifæri. Við erum stolt af því sem stóriðjan hefur gert en hún getur gert betur og hún vill (Forseti hringir.) gera betur.