aðgerðir vegna skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Ég vil sérstaklega þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn því að hér er mál sem Alþingi allt þarf að sameinast um að taka föstum tökum. Við myndun nýrrar ríkisstjórnar var sérstaklega vikið að aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi í stefnuyfirlýsingu. Ég hef frá fyrsta degi verið mjög fókuseruð í þessum efnum. Ég fór t.d. og heimsótti Europol til að kynna mér starfið þar og er eftir þá heimsókn enn þá sannfærðari um að alþjóðlegt samstarf og alþjóðleg samvinna löggæsluyfirvalda er algjör lykill að því að ná raunverulegum árangri. Þar er ég auðvitað að horfa til þess að við erum að glíma við hópa sem vinna þvert á landamæri, virða engin landamæri, og sækja, eins og hv. þingmaður nefnir, í unglinga og jafnvel lítil börn. Þá verður löggæslan auðvitað líka að geta unnið þvert á landamæri.
Hv. þingmaður nefnir líka eftirlit hins opinbera og ég fagna því, því að mér hefur á köflum fundist vera tregða í þessum sal við að viðurkenna mikilvægi eftirlits. Við viljum þrengja að og sækja að skipulögðum glæpahópum úr öllum áttum. Við viljum gera það með löggæslu, við viljum gera það með öllum þeim opinberu eftirlitsaðilum sem við eigum. Við viljum beita Skattinum, við viljum beita fjármálaeftirliti. Við förum allar þær leiðir sem við mögulega getum.
Hv. þingmaður spyr hvort ekki sé eðlilegt að horfa til nágrannalandanna og ég segi já, auðvitað gerum við það. Við viljum vinna úr þeirri reynslu og forðast að endurtaka þeirra mistök. Ég er með í vinnslu í mínu ráðuneyti aðgerðapakka sem ég hyggst koma með fyrir þingið, en tíma míns vegna fæ ég að reifa hann betur í mínu næsta svari. En ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að standa vaktina í þessu mikilvæga máli.