157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

aðgerðir vegna skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi.

[15:35]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og get sagt að það er góður tónn og skilaboð í þessu svari hæstv. ráðherra. Ég tek undir nauðsyn þess að við séum öll samtaka í þinginu varðandi næstu skref. Hér er þingið betur skipað, langar mig að segja, á þessu kjörtímabili heldur en oft áður til að stíga þessi skref. Ég átta mig auðvitað á því, eins og hæstv. ráðherra lýsti, að þarna er um að ræða starfsemi sem ekki virðir landamæri. Ég hef hins vegar fengið spurningar frá erlendum þingmönnum á erlendum fundum um það hvernig standi á öllum þessum vandræðum á okkur. Við búum jú á eyju hér og því langar mig í síðari umferð að spyrja hæstv. ráðherra út í stöðuna á landamærunum. Á síðasta kjörtímabili kynnti fyrrum dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, nýja stefnu í málefnum landamæra. Markmiðin þar byggja að miklu leyti á og eru í samræmi við Schengen-samstarfið. Styrking landamæranna er auðvitað til þess fallin að draga úr skipulagðri brotastarfsemi, eins og ríkislögreglustjóri hefur bent á.