157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

aðgerðir vegna skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi.

[15:36]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Hvað landamærin varðar þá vil ég nefna nýtt „Entry/Exit“ kerfi. Ég vil líka nefna það að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur staðið sig gríðarlega vel hvað varðar frávísanir og við erum að sjá aukinn þunga í brottvísunum. Ég nefni nýlegt dæmi frá lögreglunni á Norðurlandi eystra þar um. Varðandi aðgerðapakkann sem ég er að horfa á finnst mér að við séum annars vegar að horfa á skýr pólitísk skilaboð og stefnumótun, að við séum að efla löggæslu, bæði með mönnun og úrræðum, en að við séum líka að skoða lagaumgjörð; lögreglulög, sakamálalög, hegningarlög. Hiklaust á að fara í það að þegar tiltekin afbrot hafa tengingu við skipulagða glæpastarfsemi, leiði það til sjálfstæðrar hækkunar. Við vitum hins vegar að þyngri refsingar eru ekki lausnin. Þær eru svar en þær eru ekki sjálfstæð lausn. Við þurfum að byrgja brunninn. Ég er að að skoða það t.d. hvernig ákvæði almennra hegningarlaga, 175 gr. a, að mig minnir, um skipulagða glæpastarfsemi lítur út, til að ná þéttari tökum á skilgreiningunni, og ýmsar heimildir lögreglu til handa, því að það vantar enn þá upp á það að lögregla á Íslandi standi jafnfætis systurembættum sínum á Norðurlöndunum.