Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.
Virðulegi forseti. Það er mikill heiður að taka sæti á Alþingi í dag og taka hér til máls. Ég vil byrja á að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að taka vel í þá ósk mína að ræða hér stöðu barna og ungmenna á samfélagsmiðlum. Í núverandi ástandi erum við að bregðast hlutverki okkar um vernd barna gegn skaðlegu efni á samfélagsmiðlum. Í lögum finnum við ýmis ákvæði um vernd barna gegn skaðlegu efni, t.d. í fjölmiðlalögum. Þar er vísað til efnis sem getur haft skaðleg áhrif á líkamlegan, andlegan og siðferðislegan þroska barna, eins og klám og tilefnislaust ofbeldi. Á meðan er svo til frítt spil gefið á samfélagsmiðlum. Meiri hluti stúlkna á unglingastigi í grunnskóla hefur séð leiðir til að grenna sig verulega með lystarstoli og búlemíu. Þriðjungur barna á unglingastigi hefur séð umræður um leiðir til þess að skaða sig líkamlega. Ég gæti haldið langa ræðu um tölfræði yfir hatursskilaboð, neteinelti og versnandi geðheilsu og líðan ungmenna síðustu ár.
Hér erum við ekki að ræða málefni sem verður leyst með einfaldri aðgerð í skólakerfinu. Ógn steðjar að lýðheilsu barna og ungmenna og það er okkar að bregðast við. Á sama tíma og við lesum fréttir um unga íslenska stúlku í klóm alþjóðlegs glæpahóps sem hvöttu til sjálfsskaða og ofbeldis liggur ábendingarlína fyrir börn niðri vegna fjárskorts og hefur gert það um nokkurt skeið. Þar voru árlega berast um 200–300 ábendingar þar sem hátt hlutfall innihélt ábendingar um staðfest kynferðisofbeldi gegn börnum. Hér ríkir óviðunandi úrræðaleysi.
Það er samt ekki bara aðgengi að skaðlegu efni sem við þurfum að horfa til. Rannsóknir sýna okkur einnig hátt hlutfall sem verður fyrir kynferðislegri áreitni og beiðnum um nektarmyndir. Sendingar nektarmynda og beiðnir um þær eiga ekki að þurfa að teljast eðlilegur hluti af barnæsku.
Virðulegi forseti. Á samfélagsmiðlum í dag er lágmarksaldurinn 13 ár og byggir það á persónuverndarlögum. Á meðan styðjumst við við sjö aldursflokka upp í 18 ára til að aldursmerkja kvikmyndir, þætti og tölvuleiki út frá skaðsemi og hvort efni geti haft áhrif á hegðun eða þroska. Í þessu felst óþolandi og hrópandi ósamræmi.
Við höfum náð árangri með vitundarvakningu og fræðslu og höfum lækkað hlutfall barna yngri en 13 ára á samfélagsmiðlum eins og TikTok og Snapchat. Árið 2021 voru 60% barna á Íslandi á aldrinum 9–12 ára með aðgang að TikTok og Snapchat. Tveimur árum síðar hafði það hlutfall lækkað niður í 36% á TikTok og 42% á Snapchat. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja með aldurshópinn þar fyrir ofan. Hlutfall 14–16 ára inni á TikTok og Snapchat hefur ekki lækkað. Þegar 13 ára aldri hefur verið náð er hætta á að vel meinandi og ábyrgir foreldrar missi tökin út af óbærilegum félagsþrýstingi sem röng aldursmerking samfélagsmiðla skapar. Við eigum að standa með foreldrum í þessu máli fremur en fyrirtækjum sem líta á börnin okkar sem söluvöru.
Ég mun því leggja fram tvíþætta þingsályktunartillögu sem varðar annars vegar hækkun lágmarksaldurs barna á samfélagsmiðlum og hins vegar hertar reglur um markaðssetningu og auglýsingar sem beint er að börnum á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum vettvangi, með sérstakri áherslu á að koma í veg fyrir markvissa markaðssetningu byggða á persónuupplýsingum barna.
En hér í þessari sérstöku umræðu vil ég spyrja hæstv. ráðherra um stöðu okkar í þessum málum. Við stöndum fyrir utan reglugerðir Evrópusambandsins um stafræna þjónustu, Digital Services Act, sem gerir fámennum eftirlitsaðilum erfitt fyrir því að þeir standa eftir vanmáttugir gegn stóru tæknifyrirtækjunum sem leggja sjálf leikreglurnar eftir eigin hentisemi. Við erum að bregðast skyldu okkar um vernd barna gegn skaðlegu efni á netinu og samfélagsmiðlum. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvernig eigi að bregðast við þeirri stöðu. Hver er staðan á innleiðingu Digital Services Act á Íslandi? Hvernig er verið að tryggja börnum og ungmennum nauðsynlega fræðslu um upplýsinga- og miðlalæsi til að geta notað netið, samfélagsmiðla og gervigreind á ábyrgan og uppbyggilegan hátt? Er ekki kominn tími til að við hér setjum leikreglurnar í staðinn fyrir fyrirtækin, að við setjum loksins rétt og raunverulegt aldurstakmark á samfélagsmiðla þar sem við höfum hagsmuni og vernd barna að leiðarljósi?