Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka frummælanda fyrir gott mál hér og að vekja máls á mjög mikilvægu málefni. Undirritaður átti spjall við 15 nemendur á unglingastigi í grunnskóla fyrir stuttu og fékk að skoða í símana hjá þeim. Í símunum voru frá því á deginum á undan 156–786 skilaboð. Ofboðslega mörg skilaboð hjá þessum 15 unglingum, 156 fæst og hátt í 800 flest. Öll langaði þau að bregðast við þessum skilaboðum. Það er einhvers konar þörf sem vaknar þegar þú veist að skilaboð eru í símanum, þrátt fyrir að þau vissu að flest þeirra væru bara ómerkileg Snapchat-myndbönd eða Instagram-skilaboð.
Þessi rafræna endurgjöf er ánetjandi og það skiptir máli að við tökum þetta alvarlega. Allir þeir klukkutímar sem fara í samfélagsmiðla fara ekki í annað. Í skýrslu UNICEF frá 2020 skorar Ísland lægst hvað félagsfærni varðar og íslensk börn eiga erfiðast með að finna sér vini. Ef skoðuð eru síðustu 15 ár frá því að samfélagsmiðlar komu fyrst á markaðinn þá hefur kvíði aukist verulega. 75% 15 ára stúlkna finna fyrir kvíða vikulega eða oftar — vikulega eða oftar — og 55% finna fyrir depurð vikulega eða oftar. Minni samhygð, miklu meiri einmanaleiki. Við þurfum að ná tökum á þessum málaflokki. Tæknirisarnir hafa sjálfir sett aldursviðmið, oftast 13 ár. Ef það er samhljómur um að hækka aldursviðmiðin ættu fyrirtækin sjálf að breyta viðmiðunum og hjálpa almenningi að virða þau. Ástralir hafa nú þegar sett lög um aldurstakmörk á samfélagsmiðlum og önnur ríki vinna að slíkri lagasetningu. Við ættum að fylgjast vel með þeirri vinnu.