Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.
Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Skúla Braga Geirdal, kærlega fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni sem ég leyfi mér að segja að sé mér mjög hjartfólgið því að ábyrgðin er núna á okkur, kæru samstarfsfélagar. Við viljum öll að börnin okkar séu örugg heima hjá sér. Eins og staðan er í dag getum við ekki sagt það. Ég tek undir með hæstv. forsætisráðherra Danmerkur og hæstv. barnamálaráðherra um það að samfélagsmiðlar séu á góðri leið með að stela æsku barnanna okkar. Þetta eru stór orð en ég tek undir þau. Við eigum að taka afstöðu til þess og ég ætla að vera í liði með þeim sem sjá hættuna sem er orðin viðvarandi og ágerist bara. Vitanlega þurfa unglingarnir okkar að hafa frelsi og fá tækifæri til að sýna ábyrgð en þau eru ekki alltaf fær um að tryggja það á eigin spýtur og þá verðum við að koma inn og þetta er staðreynd. Það er auðvelt að setja reglur um áfengiskaupaaldur og það er svona ákveðin vinna að fylgja þeim eftir en stafræni heimurinn er flóknari. Hér á landi er staðan sú að 10–11 ára börn eru á samfélagsmiðlum, í stórum bekkjarspjallgrúppum. Almenningur er ekkert meðvitaður um skaðsemina. Við viljum að unglingar eigi aðgang að rými þar sem skoðanaskipti fara fram og það er mikilvægt að þau geti sagt hug sinn. Við reiðum okkur hins vegar á að foreldrar vinni með okkur. Við sjáum að það eru stór nöfn úti í heimi sem tala fyrir hækkun á lágmarksaldri. Ég nefni Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, ég nefni leiðtoga jafnaðarmanna í Svíþjóð, Magdalenu Andersson. Eitt er ljóst, að þetta er landamæralaus áskorun. Samfélagsmiðlanotkun 10–11 ára barns er hins vegar ekki bara einkamál fjölskyldunnar. Ég biðla til foreldra um allt land að átta sig á því að við þurfum öll að vinna saman (Forseti hringir.) að því að eyða þessu samfélagsmeini sem samfélagsmiðlanotkun barna í raun og veru felur í sér.