Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.
Virðulegur forseti. Ég býð hv. þingmann velkominn til þings og tek fram að þessi umræða er lofsvert framtak. Þetta er mjög mikilvægt mál sem varðar okkur öll og ég held að við verðum að vera sammála um að það sé hagur þjóðarinnar og barnanna okkar frekar en hagur stóru tæknifyrirtækjanna sem á að vera leiðarljós okkar í þessu. Hins vegar hefur hagur stóru tæknifyrirtækjanna augljóslega ráðið för í einhverjum skilningi vegna þess að það eru viðskiptasjónarmið og svo bara gengur samfélagið einhvern veginn eftir því hvað þessi fyrirtæki ákveða.
Það eru margar aðgerðir sem menn nefna og auðvitað eru bönnin alltaf freistandi sem lausn á stóru vandamálum samfélagsins en óvíst hversu vel þau virka. Hér var nefnt klámið sem ég tel sannarlega að ætti að framfylgja með hörðum stafrænum lausnum til þess að raunverulega banna klám fyrir t.d. fólk sem er undir lögaldri. Þetta er ólöglegt þannig að það þarf að framfylgja því. Þetta var nú uppmálað sem einhver forræðishyggja á sínum tíma þegar menn töluðu fyrir því að fara hart á eftir þessu á netinu. Það er ekki forræðishyggja að framfylgja lögum, þá eru lögin forræðishyggja, sem ég held reyndar að flestir séu sammála um.
Hitt eru aldurstakmörkin fyrir 15 eða 16 ára á samfélagsmiðlunum. Ég held að allt slíkt megi vel taka umræðu um. Stóri vandinn í þessum málum, líka gagnvart yngri börnum og notkun snjalltækja almennt, ekki bara samfélagsmiðlanna, er félagsþrýstingur, vegna þess að um leið og eitt foreldri leyfir eitthvað þá eru önnur foreldri komin í öllu flóknari stöðu gagnvart því að leyfa það ekki, hvað þá ef það eru fleiri foreldrar en einn á meðan þú vilt verja og ert þá farinn að reka hálfgerðan sértrúarsöfnuð heima hjá þér bara vegna þess að þú vilt verja barnið þitt frá internetinu. Þetta er augljóslega samfélagslegt úrlausnarefni, hvernig við komumst að sameiginlegum viðmiðum sem foreldrar geta þá líka — stundum þurfa þeir þá kannski, eins og við viljum nú að foreldrar séu ábyrgir fyrir öllu saman, geta kannski mögulega á einhvern hátt firrt sig ábyrgð gagnvart börnunum og sagt: Því miður, þetta eru bara almennu reglurnar og við fylgjum þeim. Ég held að það séu margir sem þyrftu á því að halda, almennum viðmiðum, þótt þau væru ekki lög. Því verður aldrei fylgt eftir almennilega en það er sannarlega eitthvað sem samfélagið og þar með auðvitað við hérna á Alþingi eigum að vera óhrædd við að taka umræðu um vegna þess að eins og ástandið er núna þá sér maður börn í tækjum og í mörgum tilvikum verkjar mann að sjá þetta, (Forseti hringir.) þetta er það slæmt. Það er hreinlega þannig og þetta er ekki að skána, þetta er að versna, þannig að okkar ábyrgð er mikil að ráðast á þetta vandamál.