157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:05]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga máli. Þetta er snúið. Ég á fimm börn sem eru nú öll komin bara á svipaðan aldur og ég sjálfur í dag, en þau eru búin að geta af sér börn líka og ég á átta barnabörn og ég hef fylgt ákveðnum reglum og viðmiðum. Á Lego stendur t.d. fyrir hvaða aldur það er og ég hef bara fylgt því af því að ég veit að það er eitthvert fólk sem er að pæla í því að það sé ekki eitthvað lítið Lego sem eitthvert smábarn gæti borðað eða eitthvað svoleiðis. Útivistartími, ég hef reynt að fylgja honum svona nokkurn veginn, kannski ekki alltaf út í ystu æsar, líka myndir eða tölvuleikir sem eru bannaðir innan einhvers ákveðins aldurs og ég hef fylgt því eða þá að ég hef fylgt krökkunum mínum í gegnum leiki eins og, með leyfi forseta, Call of Duty eða GTA. En ég hef líka reynt að vernda börnin mín fyrir þvaðri vegna þess að fólk í kringum þau er þvaðrandi allan fjandann við börn, segjandi við þau: Þú átt að gera svona og svona, eitthvert svona þvaður. Ég hef reynt, í staðinn fyrir að tala kannski alltaf við þetta fólk, að ræða við börnin mín: Þú veist að þetta sem þessi kona var að segja við þig er bara bull, þetta er bara eitthvað sem henni finnst, þetta er ekki algilt. Síðan hafa samfélagsmiðlarnir náttúrlega þróast gríðarlega mikið frá því að þeir komu til og eru orðnir í dag alveg ofboðslega mikið þvaður. Ég kalla líka svona auglýsingar og upplýsingar rugllýsingar. (Forseti hringir.) Ég er alltaf að fá þetta endalaust upp á Facebook, að það sé búið að grafa upp einhverja geimverubeinagrind einhvers staðar eða að einhverjir mótorhjólakappar (Forseti hringir.) séu að vinna einhver góðverk, bjarga börnum. Og síðan bara auglýsingar sem er beint að mér. Mér finnst full ástæða til að skoða það hvernig við verndum börnin okkar fyrir svona ágangi.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörk og að þingmálið er íslenska.)