157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:08]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að efna til þessarar umræðu hér í dag, sem er gríðarlega mikilvæg, og sömuleiðis bjóða hann velkominn á þing. Mig langar til að gera hér að umtalsefni metsölubókina Kvíðakynslóðin, sem er eftir sálfræðinginn og prófessorinn Jonathan Haidt. Bókin fjallar um það hvernig frá árinu 2010 bernskan hafi smátt og smátt horfið frá leiksvæðum, frá útiveru, frá félagslegu öryggi yfir í skjáinn, mat annarra og stöðuga truflun. Höfundur fjallar um hver áhrifin hafa orðið af þessari breytingu sem hann kallar, með leyfi forseta, á ensku „The great rewiring“, sem þýða má sem „endurvírun bernskunnar“. En hvað hefur gerst? Hann nefnir fjögur atriði sem hljóma öll kunnuglega: Unglingar lifa í dag í stöðugum samanburði. Unglingsstúlka setur inn mynd á samfélagsmiðla og fær misjöfn viðbrögð sem valda kvíða. Haidt vísar til gagna frá Bandaríkjunum sem benda til þess að frá 2010–2020 hafi innlagnir á sjúkrahús vegna sjálfsskaða hjá 10–14 ára stúlkum þrefaldast og tvöfaldast hjá eldri hópum barna. Þetta gerist á sama tíma og miðlarnir eru að ryðja sér til rúms og notkun síma eykst.

Í öðru lagi fjallar bókin um hvernig samskipti hafa færst úr rödd og augnsambandi yfir í texta, hversu erfitt það getur verið fyrir ungt fólk þegar eitt ókei eða rangt lyndistákn frá vini veldur einfaldlega kvíða. Í þriðja lagi fjallar Haidt um svefninn. Mörg börn í dag vakna mörgum sinnum á nóttu til að kíkja á símann. Það að þjást af svefnleysi geti grafið undan vellíðan og eflt vonleysi. Haidt fjallar í bókinni um að hlutfall unglinga vestra, sem segja (Forseti hringir.) að þau finni fyrir viðvarandi sorg eða vonleysi, hafi aukist úr 26% árið 2009 í 44% árið 2021. (Forseti hringir.)

Haidt dregur fram að snjallsíminn hafi tekið yfir rýmið þar sem börn byggðu áður upp hugrekki og seiglu. Ef við viljum (Forseti hringir.) laga þetta þá þurfum við að taka á þeim áskorunum sem samfélagsmiðlar og síminn eru í dag. (Forseti hringir.) Ég hvet hv. þingmann til dáða.