157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:10]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Ég vil þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir að vekja máls á þessari góðu umræðu og nauðsynlegu. Netið og samfélagsmiðlar eru komnir til að vera og orðnir stór þáttur í lífi okkar flestra. Fullorðnir jafnt sem börn og ungmenni verja umtalsverðum tíma á samfélagsmiðlum. Ríkið getur auðvitað gert sitt til að verja börn og ungmenni með almennum reglum en foreldrar gegna þar hins vegar lykilhlutverki, í fyrsta lagi með góðu fordæmi og eðlilegu eftirliti. Það kemur ekkert opinbert eftirlit í stað foreldra og að hluta til skóla í þessum efnum. Það er sjálfsagt að stjórnvöld setji aldurstakmörk á tiltekna miðla þar sem umheimurinn hefur óheftan aðgang að öllum notendum og þar með börnum. Ung börn ættu ekki að hafa óheftan aðgang að tilteknum miðlum. Samkvæmt rannsóknum fylgjast flestir foreldrar með netnotkun barna sinna, að skjátími sé við hæfi og efnið í samræmi við aldur og þroska. Færst hefur í aukana að börn niður í átta ára gömul hafi óheftan og stundum eftirlitslausan aðgang að neti. Hversu stór sá hópur er, er ekki gott að segja. Tengsl óhóflegrar skjánotkunar barna og ungmenna og kvíða og þunglyndis hafa margsinnis verið staðfest í ýmsum rannsóknum og könnunum. Undanfarin misseri hafa kvartanir unglinga yfir kvíða aukist. Þegar leitað er orsaka kemur oft í ljós að tölvu-, síma- og netnotkun þessara barna er mikil, sem truflar bæði nám og svefn. Börn sem fá ekki nægan svefn eru verr í stakk búin til að mæta verkefnum og kröfum daglegs lífs. Nauðsynlegt er að móta einnig miðlægan ramma um notkun farsíma í grunnskólum en treysta verður einstökum skólum til að setja sínar reglur út frá þeim ramma í samvinnu við börnin og foreldra þeirra. Börnin sjálf hafa kallað eftir því. Tímabært er jafnframt að setja aldurstakmark á samfélagsmiðla og fylgja slíkri reglugerð eftir með reglubundinni fræðslu til foreldra, barnanna og samfélagsins í heild.