Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.
Forseti. Ég ætla að þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir að vekja máls á þessu. Ég ætla líka að hrósa hæstv. ráðherra. Ég stóð hér síðast í síðustu viku og gagnrýndi hæstv. ráðherra fyrir málafæð á þessari þingmálaskrá en ég sé að þingmenn sjá þá bara til þess að hæstv. ráðherrar hafi nóg að gera. Ég ætla líka að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að hlusta, hlusta á þær hugmyndir sem fram koma í þingsal og í samfélagsumræðunni, því að mér heyrðist hann vera jákvæður fyrir því að skoða breytingar á þessu. Ég ætla að taka undir með flestum sem hér hafa talað um það að síminn og samfélagsmiðlar eru auðvitað einhver risastór samfélagsrannsókn sem við erum að gera og við erum að gera þessa rannsókn á börnunum okkar. Við vitum núna hver afleiðingin er. Það er þekkt hver afleiðingin er. Allt of ung börn eru að takast á við umhverfi sem þau ráða ekki við á samfélagsmiðlum. Tölurnar eru ískyggilegar. Þrátt fyrir að samfélagsmiðlarnir sjálfir hafi miðað við 13 ára aldur virðist vera að fjöldi foreldra hleypi börnunum sínum eða fylgist ekki nægilega með þannig að börnin komast inn á þessa miðla og af því hlýst skaði fyrir viðkomandi barn. Þar af leiðandi er áhugavert að sjá í tölunum að það hefur þó aðeins fækkað í yngri aldurshópnum, þeim sem eru inni á Snapchat og TikTok, sem ég persónulega met sem jafnvel hættulegri samfélagsmiðla en marga aðra. Við sjáum það á kínverska samfélagsmiðlinum TikTok að t.d. eru allt aðrar reglur um hann í Kína, þar sem hann er upprunninn, heldur en eru annars staðar. Þess vegna skiptir fræðsla til foreldra gífurlega miklu máli. Ég tek undir það að við getum ekki tekið ábyrgðina af foreldrunum en reglur um útivistartíma hafa sýnt töluverðan árangur. Ég held því að það sé full ástæða til að við skoðum hvort ekki sé ástæða til þess að hækka aldurstakmark inn á samfélagsmiðla en fyrst og fremst (Forseti hringir.) vera með fræðsluna til staðar til að styðja foreldra í því að reglunum sé fylgt og að fólk átti sig á þeim áhrifum sem samfélagsmiðlar geta haft á æsku barna. Svo þurfum við líka að muna (Forseti hringir.) að samfélagsmiðlarnir eru ekkert að fara, þannig að börnin okkar þurfa auðvitað líka á einhverjum tímapunkti að læra að meðhöndla samfélagsmiðla með réttum hætti.