157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:16]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir þessa umræðu hér í dag og hæstv. ráðherra fyrir sitt innlegg. Umræðan er virkilega mikilvæg því að við erum búin að koma okkur alveg út í skurð þegar kemur að síma- og samfélagsmiðlanotkun barna og ekki aðeins þeirra heldur þurfum við fullorðna fólkið líka aldeilis að líta í eigin barm og upp úr símanum. Börnin gera ekki endilega eins og við segjum, þau gera líka eins og við gerum. Mörg af þeim löndum sem við miðum okkur við eru þegar að taka stór skref í að vernda börn frá samfélagsmiðlum, eins og hefur komið fram hér í dag, með því að hækka aldurstakmark og gera fyrirtækin sjálf ábyrg fyrir því að börn undir aldri komist ekki inn á miðlana. Ástralía gengur kannski hvað lengst með sektum upp að 4,5 milljörðum íslenskra króna sinni samfélagsmiðlafyrirtækin ekki skyldum sínum.

Í hugum sumra er það algjör fásinna að ætla að ganga svo langt að hækka aldursviðmið barna og banna þau á samfélagsmiðlum. En það var líka fólk sem andmælti því að það ætti að banna reykingar á veitingastöðum og í almannarými. En nú er enginn að velta því fyrir sér þegar við vitum að það skiptir máli fyrir lýðheilsu. Það eru örugglega til foreldrar sem eru með það algerlega á hreinu hvað barnið þeirra er að innbyrða á netinu í gegnum hina ýmsu samfélagsmiðla en ég ætla að leyfa mér að halda því fram að þeir séu undantekningartilfellin. Flest höfum við í raun litla hugmynd og mörgum brá þegar saga ungrar stúlku sem lenti í klóm alþjóðlegra glæpamanna innan veggja eigin heimilis var sögð fyrir nokkrum vikum. Ég var örugglega ekki ein þegar ég hugsaði með mér að þetta hefði allt eins getað komið fyrir mitt barn, virðulegi forseti. Með því að banna börnum ákveðna samfélagsmiðla værum við ekki að taka af þeim tækifæri til að læra á tæknina og nýta fjölmarga kosti hennar. Við erum einfaldlega að axla þá ábyrgð sem við berum, að búa börnum öruggt umhverfi til að vaxa og þroskast í. Þetta er öryggismál, þetta er lýðheilsumál og ekki síst velferðarmál.