157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:18]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég vil eins og aðrir hér byrja á að þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir að vekja máls á þessu og bjóða hann velkominn til þings. Nú háttar svo til að sá sem hér stendur starfaði, raunar fyrir allnokkrum árum, við fræðslu á þessu sviði, m.a. fyrir foreldra og börn. Vissulega hefur tækninni fleygt mikið fram á þessum árum sem síðan eru liðin og verkefnin orðið flóknari fyrir vikið. Umræðan er því ekki ný af nálinni. Við erum búin að vera að glíma við þetta sem samfélag núna í allnokkur ár og meira að segja hægt að rekja þetta alveg aftur til gamalla leikja, eins og Second Life á sínum tíma, sem buðu upp á það að þeir sem spiluðu leikinn gætu komist í spjallborð til hliðar við leikinn. Alveg síðan þá erum við búin að vera í þessu samtali. Sá sem hér stendur hefur þó efasemdir um að bann sé lausnin. Ég tel að í ljósi reynslu okkar Íslendinga við að fást við stór lýðheilsumál er varða ungt fólk þá ættum við kannski frekar að líta til árangursins sem við náðum á sínum tíma í gegnum fræðslu, þegar við hófum stórátak í að fræða ungt fólk í landinu um afleiðingar reykinga. Það er líklega einhver merkasti árangur sem þessi þjóð hefur náð í lýðheilsumálum. Þess vegna hallast ég alla jafna frekar að því að fræðslan skili meiri árangri en bannið. Í þessu samhengi vísa ég til þess einnig að við erum með talsvert af börnum á aldrinum 9–12 ára sem eru í vandræðum með þessa miðla, jafnvel þó að það aldurstakmark sé undir reglugerðinni eða reglunum, þannig að bannið er ekki að koma í veg fyrir það. Ég hvet hins vegar okkur öll til að halda þessu samtali áfram því ég held að við getum fundið út leiðir sem skila okkur meiri árangri heldur en að færa eitthvert viðmið úr 13 í 15.