157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:20]
Horfa

Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra fyrir góða umræðu. Ég er fulltrúi þeirrar kynslóðar sem ólst upp eftirlitslaus í frumskógi internetsins frá barnsaldri. Ég er fædd árið 1998 og steig mín fyrstu skref snemma inn í netheima. Þá voru samfélagsmiðlar hins vegar ekki komnir til sögunnar. Tíma mínum var miklu frekar varið í tölvuleiki á borð við, með leyfi forseta, Neopets, Roomscapes, Schizo og Club Penguin áður en samfélagsmiðlarnir tóku síðan við. Þegar við vinkonurnar rifjum upp æskuna þá reikar hugurinn til Tomma og Jenna-svalans, Disney-mynda á VHS spólum, tilkomu ferða-DVD-spilarans og manna með barnagirnd sem urðu á vegi okkar í frumskógi internetsins. Ég var mjög ung þegar ég varð fyrst fyrir kynferðislegri áreitni. Það var í tölvuleiknum Club Penguin, sem er ætlaður börnum sem vilja spjalla við önnur börn í líki mörgæsa. Það sama átti við um fleiri leiki af þessu tagi og þegar samskiptaforrit komu til sögunnar þá varð mjög auðvelt fyrir menn með misjafnt í huga að komast í tæri við börn. Hætturnar leynast víða á netinu og mér finnst það skjóta skökku við að þau sem ætla sér að marka stefnu og mögulega banna aðkomu barna og ungmenna á samfélagsmiðlum sé yfirleitt fólk sem kynntist internetinu á fullorðinsárum eða í besta falli seint á unglingsárum. Við sem ólumst upp eftirlitslaus í frumskóginum þekkjum vel að samfélagsmiðlarnir voru ekki okkar stærsta ógn heldur mun frekar samskiptin, skortur á gagnrýnni hugsun, skortur á fræðslu og þekkingu þeirra sem áttu að passa okkur. Fólk sem þekkir unglinga veit að það þýðir yfirleitt mjög lítið að banna þeim hitt og þetta. Því finnst mér samtalið um börn og ungmenni og samfélagsmiðla vera tekið frá svolítið öfugum enda hér. Við þurfum miklu frekar að ræða hvernig við ætlum að taka utan um börnin okkar, kenna þeim að umgangast náungann á internetinu og hvaða hættur leynast þar. Við þurfum að fylgjast með því hvað börnin okkar eru að gera og segja á internetinu. (Forseti hringir.) Höfum hugfast að internetið er ekki það sama og notkun samfélagsmiðla.